Improv Ísland

Archives
Subscribe
October 29, 2026

Tilraunakvöld og námskeið í Haraldinum

Hæ hæ !

Það er nóg um að vera hjá Improv Ísland! Fram undan er spennandi tilraunakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum og tækifæri til að kafa dýpra í heim spunans í formi námskeið

━━━━━━━━━━━━━━━━━━

🎭 TILRAUNAKVÖLD IMPROV ÍSLAND

Nýr skammtur af ófyrirsjáanlegum spuna í Þjóðleikhúskjallaranum!

Þriðjudaginn 3. nóvember fer annað tilraunakvöld leikársins fram í Þjóðleikhúskjallaranum.

Æfingahópur Improv Ísland stígur á svið og býður upp á kvöld þar sem allt getur gerst. Hér verður spunnið, prófað og leikið af fingrum fram og auðvitað ekkert er ákveðið fyrirfram!

📍 Staður: Þjóðleikhúskjallarinn
📅 Dagsetning: Þriðjudagurinn 3. nóvember
💸 Miðaverð: Aðeins 1.500 kr.

🎟️ Miðasalan er hafin! Miða má nálgast á leikhusid.is og tix.is.

Taktu kvöldið frá, nældu þér í miða og komdu að upplifa hvað gerist þegar spuninn tekur völdin!

━━━━━━━━━━━━━━━━━━

🎭 NÁMSKEIÐ Í HARALDINUM (301)

Ertu tilbúin/n/ið að taka spunann á næsta stig?

Nú gefst tækifæri til að kafa djúpt í regluverk og uppbyggingu spunaformsins Haraldurinn!

Haraldurinn er af mörgum talinn eitt krefjandi form spunans – og ekki að ástæðulausu. Þegar þú hefur náð tökum á honum ertu vel í stakk búin/n/ið til að takast á við fjölbreyttar spuna senur og áskoranir á sviðinu.

Á þessu námskeiði fá nemendur aukna ábyrgð og vinna markvisst að því að halda uppi heilli sýningu. Hér gefst því einstakt tækifæri til að dýpka spunafærnina, skerpa á samspilinu og öðlast meira öryggi í langformsspuna.

🎭 Kennari: Hákon Sæberg
📅 Upphaf: 16. nóvember
🗓️ Kennsludagar: Mánudagar og fimmtudagar
📚 Fjöldi skipta: 8

Nauðsynlegt er að hafa lokið Spuna 201 eða sambærilegu námskeiði.

📩 Skráning er hafin!
Skráðu þig með því að senda tölvupóst á improvisland@improvisland.is.

━━━━━━━━━━━━━━━━━━

Við hlökkum til að sjá ykkur á sviði, í salnum og á námskeiðum hjá Improv Ísland

Minnum svo á sýningarnar okkar alla miðvikudaga í Þjóðleikhúskjallaranum.

Don't miss what's next. Subscribe to Improv Ísland:
← Newer Tilraunakvöld 3 nóvember Older → Ný stjórn Improv Íslands - Fréttabréf október
Powered by Buttondown, the easiest way to start and grow your newsletter.